Heklusýning

En nú er komin "open source" Heklusýning. Bíðum bara spennt eftir að eitthvað gerist..... http://pallit.lhi.is/hekla/applet/index.html
mbl.is Deilt um Heklusýningu fyrir dómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins listrænni útgáfa af beinu útsendingunni frá Heklu

Ég tók mér það bessaleyfi að breyta vefmyndavél RÚV í "lifandi" málverk.

(Kannski rétt að taka fram að verkið kann að vera fjölbreyttara í dagsbirtu.)

http://pallit.lhi.is/hekla/applet


mbl.is Gæti gosið með skömmum fyrirvara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prufa

Þetta er prufa.

Obama mómentið...

Smá myndband sem ég bjó til úr beinni útsendingu á hátíðarhöldunum


Inaugurationanimation from Pall Thayer on Vimeo
mbl.is Obama sór embættiseið aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

You're lying, Darling.

Það sem hann sagði var þetta: "The Icelandic government, believe it or not, have told me yesterday they have no intention of honouring their obligations here." Þetta er ekki það sama og "Ég mat það sem þeir sögðu sem svo að..."

Maðurinn er einfaldlega lygari. Þetta var ekkert annað en pólitísk brella. Í samtali hans og Árna reynir hann ítrekað að fá Árna til að segja að Íslendingar munu ekki standa við sitt. En Árni gerir það ekki. Þannig að Darling ákvað einfaldlega að ljúga og segja að hann hafi gert það.


mbl.is „Var ekki í nokkrum vafa eftir samtalið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri vitleysan... nekt eins er alls ekki nekt annars og meira um það

"Meiri vitleysan!" hrópum við hér á skerinu. En það vakna ýmsar áhugaverðar spurningar við svona mál. Það vill svo til að ég er nýbúinn að ljúka nýju listaverki sem fjallar akkúrat um þetta og sem meira er, það er aðgengilegt á netinu:

http://pallit.lhi.is/nude_studies

 Verkið notar einmitt nekt til að skoða hvernig mismunandi þjóðfélagshópar um allan heim hafa mismunandi skoðanir á málum. Annað sem flettist inn í þetta er það að háhraða upplýsingafluttningur nútímans hefur gert það að verkum að við virðumst stundum gleyma því að þetta er að gerast langt í burtu þar sem gilda önnur viðmið. Þó má nú færa rök fyrir því að stúlkan er alls ekki nakin á myndinni og þar að auki er Annie Liebowiz virt og viðurkennd listakona og nekt í listum nýtur ákveðinnar sérstöðu í flestum vestrænum ríkjum. Þetta er mál sem franski heimspekingurinn Paul Virilio fjallar mikið um og varð að mörgu leiti kveikjan að listaverkinu fyrrnefnda. Þess má geta að verkið birtist í smækkaðri mynd á netinu. Aðeins fjórar staðsetningar sem koma þar fram. Ég er á leiðinni til Montreal að setja verkið upp í galleríi og þar verða 12 staðsetningar sem túlka nektarmyndir hver með sínum hætti.


mbl.is Barnastjarna biðst afsökunar á myndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðskjálftar í Kaliforníu og sjálfvirkar módelteikningar

Það vill svo til að nýjasta net-listaverkið mitt notast einmitt við rauntíma skjálftaupplýsingar, meðal annars frá Kaliforníu. Fylgist með hér: http://pallit.lhi.is/nude_studies
mbl.is Spá stórskjálfta í Kaliforníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum viltu tilheyra?

Þetta er undarleg frétt. Saatchi vefgalleríið er opið öllum sem vilja skrá sig. Er það þá fréttnæmt að einn Íslendingur hefur skráð verk í keppnina? Ég er viss um að það séu fleiri Íslendingar sem taka þátt, er ekki þá réttast að skrifa frétt um þá líka? En fyrir utan það þá finnst mér að listamenn ættu að fara varlega í að láta tengja sig við svona fyrirbæri. Fyrir mér er þetta algjörlega metnaðarlaus framsetning. Þarna fer ekki fram neitt mat á því hverjir fá að vera með né heldur hverjir fá að kjósa. Þetta er meiri vinsældarkeppni en myndlistakeppni. Hverjir geta hóað saman flesta vini og vandamenn? Fyrir þá sem vilja láta taka sig alvarlega í myndlistinni getur þátttaka í slíku gert meiri skaða heldur en gagn.
mbl.is Tekur þátt í keppni netgallerís Saatchi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Democratic Delegate Soup

Why don't these numbers ever match. The Washington Post's numbers usually appear to match numbers shown on other news sites such as news.bbc.co.uk and www.reuters.com but CNN's numbers always seem to exaggerate Clinton's lead. Are they deliberately showing wrong numbers or perhaps just receiving data earlier/later? I'm confused, regardless of the time that has passed since some primaries, these numbers never match so it's not an "estimate" issue. This should be hard data. So do I celebrate the fact that Hillary is only 15 delegates ahead or worry about her 61 delegate lead?

cnnpost


Eigum við að fóðra stríðsvélina?

Mér finnst notalegt að halda í þá trú að nágrannaþjóðir okkar eru tilbúnar til að aðstoða okkur í varnarmálum vegna þess að þær virða okkur fyrir að vera friðsæl lítil þjóð í miðju Atlantshafi. Þetta er ef til vill svolítið barnaleg hugsun en mér finnst hún góð. Mér finnst líka svolítið kjánalegt að tala um varnir Íslands á eigin ábyrgð. Hvað verður þessi varnarsveit okkar stór? 2000 manns? Kannski 4000 ef í hart sækir. Ekki tel ég að slík sveit muni koma að miklu gagni ef það verður ráðist á okkur.

En svo er allt annað mál sem ekki hefur verið í umræðunni. Með því að vera her- og varnarlaus erum við að stuðla að friði í heiminum á annan hátt en í orðum. Við erum að sniðganga "stríðsvélina" og þá á ég ekki við "stríðsvél" Deleuze og Guattari heldur þau markaðsöfl í heiminum sem hafa viðurværi sitt af stríðsrekstri. Vopnaframleiðendur og framleiðendur herflutningatækja. Fyrirtæki á borð við Lockheed-Martin, Honeywell og Northrop Grumman. En þetta eru auðvitað ekki einu fyrirtækin. Það eru miklu fleiri og jafnvel á norðurlöndum eru fyrirtæki eins og Nordic Ammunition Group og BAE Systems. Þeir fara ekki á hausinn þótt við skiptum ekki við þá en við getum að minnsta kosti huggað okkur við það að þessi (enn sem komið er) friðsæla þjóð okkar er ekki að styrkja starfsemi slíkra fyrirtækja sem græða á tá og fingri á manndrápi og eyðileggingu. Ef við eigum svo mikla peninga að við sjáum fram á að geta rekið her, leggjum þá frekar í eitthvað jákvætt, t.d. alþjóðleg þróunarmál.

Kannski ættum við að stofna Íslenska Geimferðastöð. "Sá tími er liðinn, að Ísland þurfi engum peningum að verja til að skoða geiminn og sá tími er kominn, að Ísland axli sjálft ábyrgð á eigin geimferðum."


mbl.is Ísland axli ábyrgð á eigin öryggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Páll Thayer
Páll Thayer
Páll Thayer er myndlistamaður. http://www.this.is/pallit

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eitthvað annað

Prufa

Heimsóknir

Heimsóknir

free counters

Tónlistarspilari

Neu! - 01 - neu - hallo_gallo

Nýjustu myndir

  • ...il_2009_033
  • ...il_2009_018
  • ...irar_639144
  • ...virar
  • cnnpost

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband